Verkefnisstjórar NýMenntar halda utan um og/eða koma að fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við aðila um land allt. Hér gefst kjörið tækifæri fyrir kennara og þá sérstaklega nemendur að tengja nám sitt með margvíslegum hætti við verkefnin t.d:
Grunn- og framhaldsskólar um allt land
- Verkefnavinna í kennsluáætlanaáföngum á MVS. Gerð kennsluáætlana hjá kennurum um allt land, sem taka þátt í NKG, LEGO, Samsýningunni og öðrum menntaverkefnum NýMenntar. Hægt væri að gera kennsluáætlanir sem tengja saman nýsköpun við t.s. samfélagslegar áskoranir, sjálfbærni, nærumhverfið, og almennt við Heimsmarkmiðin.
Sjá dæmi hér: Kennsluáætlanir ofl. úr Cristal verkefninu | Samsýning framhaldsskólanna
MVS
- Gerð kennsluáætlana fyrir starfskynningar í skólum.
Vísindasmiðjan
- Kennsluáætlanir fyrir kennara til að vinna með bekk fyrir og eftir skólahópaheimsóknir.
NKG
- Greina innsendar NKG hugmyndir s.s. dreifing á landsvísu.
NKG
- Greina efnistök og uppbyggingu keppninnar, greina kosti og galla.
MVS
- Rannsóknarverkefni á tengslum atvinnulífs við skóla.
Menntafléttan
- Nemendur gætu skrifað stutt/ lengri verkefni um Menntafléttuna - skoðað afmörkuð verkefni - meistararannsókn / doktors með aðkomu kennara sviðsins.
Skólaþróunarverkefni MVS
- Unnið er að því að setja á laggirnar, skólaþróunarverkefni sem geta nýst skólum og sveitafélögum. Nemendur gætu nýtt meistaraverkefni sitt í að gera rannsókn á stöðu starf- og skólaþróunar fyrir starfsfólk í skóla- og frístundarstarfi og koma með tillögur til úrbóta.
Námsvistkerfi STEM Ísland
- Rannsaka áhrif námsvistkerfis á færni (t.d. kennara og nemenda).
Námsvistkerfi STEM Ísland
- Rannsaka innleiðingu STEAM í Leikskólann Grænuvelli.
Námsvistkerfi STEM Ísland
- Rannsaka áhrif námsvistkerfis á viðhorf (t.d. samfélag, foreldra, kennara og/eða nemenda).
NKG
- Aðstoða við undirbúning og framkvæmd NKG/NKG+.
- Leiðbeina nemendum á vinnustofu NKG.
- Leiðbeina nemendum í hugmyndavinnunni/vera Mentorar.
- Gera keppninni skil fyrir ólíka markhópa í gegnum ólíka miðla.
Samsýning framhaldsskólanna
- Aðstoða við undirbúning framkvæmd.
- Leiðbeina nemendum í hugmyndavinnunni og listsköpuninni - vera nokkurskonar Mentorar.
- Heimsækja þátttökuskóla og ræða við nemendur um mikilvægi list- og verklegra greina og segja frá námi sínu.
Vísindasmiðjan
- Taka á móti nemendum í skólaheimsóknum í Háskólabíó.
Nýsköpunarstofa menntunar
- Ráðgjöf og margskonar nýsköpunar- og frumkvöðlastuðningur, tengingar við frumkvöðlaumhverfið, atvinnulífið og ýmsa nýsköpunarhraðla.
- Möguleg MA verkefni með Menntatæknifyrirtækjum.
Sköpunarsmiðjan (fyrir nemendur)
- Aðgengi að sköpunarsmiðjunni og ráðgjöf/stuðningur nemenda í verkefnavinnu / lokaverkefnum / vettvangsnámi.
- Nemar hafa aðgengi að búnaði út búnaðarbankanum og geta fengið lánað í gengum kennarann sinn.
- Nemendur geta setið námskeið sem vekur áhuga þeirra.
Sköpunarsmiðjan (fyrir kennara)
- Tengja skapandi kennsluhætti/ sköpunarsmiðjuna í kennslu t.d. með því að koma inn með verkefni eða kynningar í staðlotu/kennslu - áhersla á forritun.
- Tengja skapandi kennsluhætti/ sköpunarsmiðjuna í kennslu t.d. með því að koma inn með verkefni eða kynningar í staðlotu/kennslu - áhersla á yngri barna kennslu.
- Erum reglulega með smiðjur og samvinnu í áföngum á deildinni o.fl. Tengja skapandi kennsluhætti/ sköpunarsmiðjuna í kennslu t.d. með því að koma inn með verkefni eða kynningar í staðlotu/kennslu - áhersla á stafræna tækni í kennslu.
- Erum í ýmis konar samstarfi, m.a um sýnarveruleika.
- Tengja skapandi kennsluhætti/ sköpunarsmiðjuna í kennslu t.d. með því að koma inn með verkefni eða kynningar í staðlotu/kennslu - áhersla á stafrænar kennsluaðferðir í dönskukennslu.
- Tengja skapandi kennsluhætti/ sköpunarsmiðjuna í kennslu t.d. með því að koma inn með verkefni eða kynningar í staðlotu/kennslu - áhersla á sköpun.
- Erum í mikilli samvinnu við fjölmarga aðila m.a um rannsókn á þróunarverkefinu Mixinu.
Þetta er alls ekki tæmandi upptalning svo ef þið hafið áhuga á að tengjast þessu og/eða hafið tillögur að aðkomu ykkar með öðrum hætti, endilega hafið samband við verkefnisstjóra viðeigandi verkefnis. Við hvetjum kennara á MVS/HÍ sérstaklega til að hafa samband við verkefnisstjóra, fá þau til að t.d. heimsækja bekkinn eða veita ykkur annan stuðning.