HVENÆR
16. október 2023
14:30 til 17:00
HVAR
Rafrænt
Á stað í Stakkahlíð og á Zoom
NÁNAR

Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

SKRÁNING: https://forms.office.com/e/Km5GJpwgtR

Image

Menntavísindasvið HÍ í samstarfi við skóla - og frístundasvið Reykjavíkurborgar býður þér á Stefnumót við gervigreind í menntun.

Á stefnumótinu kynnumst við hvernig gervigreindin getur nýst í menntun og skoðum hagnýtingu hennar, takmörk og mennskuna. Stefnumótið er ætlað öllum þeim sem koma að skólastarfi á öllum skólastigum.

Viltu kynnast því hvernig nemendur, kennarar og annað skólafólk notar gervigreindina í menntun og fræðslu? Taktu þátt í umræðu um hvernig tæknin gæti breytt námi og hvernig hún er nú þegar farin að nýtast í menntun. Meðal annars sem fjallað verður um er hagnýting gervigreindarforrita í kennslu, skapandi notkun á gervigreind og gagnaöryggi. 

Hvenær: Mánudaginn 16. október kl.14:30 - 17:00
Hvar: Bratti á Menntavísindasviði HÍ og í streymi*
Aðgangur er ókeypis

SKRÁNING: https://forms.office.com/e/Km5GJpwgtR
 
Stefnumótið skiptist í tvennt:
14:30 - 16:00: Erindi í Bratta á Menntavísindasviði HÍ (á stað og á Zoom)
16:00 - 17:00: Stefnumót við allskonar vinkla á notkun gervigreindar í námi í stofum (á stað)
*Stefnumót er ætlað til að ná utan um fjölbreyttan veruleika gervigreindar. Hægt verður að ræða hagnýtingu gervigreindar í menntun, kynna sér möguleika og prófa ýmis gervigreindartól.

Til að viðburður nýtist sem best biðjum við þig að fylla út spurningar sem tengjast væntingum um og hvort það sé eitthvað sem þú getur deilt með skólasamfélaginu.

Skráningu lýkur fimmtudaginn 12. október kl.11:59.
*Hlekkur á Zoom verður sendur út að morgni viðburðar fyrir þá sem merkja við að mæta þangað.

Fyrirspurnir sendast á: hildurarna@hi.is eða oddstu@hi.is