Meginhlutverk Starfsþróunar Menntavísindasviðs er að veita þjónustu á fræðasviði uppeldis menntunar og þjálfunar.
Starfsþróun er ætlað að skapa vettvang fyrir miðlun þekkingar milli starfsfólks Menntavísindasviðs, annarra sérfræðinga á sviði uppeldis, menntunar og þjálfunar og þeirra sem starfa á vettvangi.
Við leggjum okkur fram um að veita þeim sem til okkar leita faglega þjónustu í samstarfi við fræðafólk Menntavísindasviðs og aðra sérfræðinga sem við höfum aðgang að.
Starfsþróun vinnur með fjölbreyttum hópi á vettvangi skóla-og frístundastarfs. Við vinnum einnig náið með starfsfólki Menntavísindasviðs og njótum sérþekkingar fræðafólks sviðsins til að koma til móts við þarfir skóla og stofnana í starfsþróun og erum ráðgefandi.
Skólaskrifstofur geta leitað til okkar eftir aðstoð við að útbúa starfsþróunarpakka fyrir starfsfólk. Einnig vinnum við með skólastjórum einstakra skóla. Fagfélög þeirra stétta sem við þjónum geta komið með hugmyndir að fræðslu og við reynum að koma til móts við þær óskir.
Markhópur okkar er fyrst og fremst starfsfólk í skóla-og frístundastarfi.
Samstarfsverkefni sem starfsþróun MVS hefur sinnt.
- Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur um innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar
- Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur um sumarsmiðjur fyrir kennara
- Skólastjórafélag Austurlands um námskeið í heiltækri forystu
- Mennta- og menningarmálaráðuneytið, KÍ og samband íslenskra sveitarfélaga um verkefnið Leiðtogar í heimabyggð í samstarfi við HA
- Skólaskrifstofu Suðurlands um námskeið í skapandi ritun og stærðfræði
- Skóla í Breiðholti í Reykjavík um fyrirlestraröð um grunnþætti menntunar
- Skóla í Breiðholti um fyrirlestraröð um námssvið Aðalnámskrár
- Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar vegna innleiðingar nýrrar aðalnámskrár