Hvenær
27. nóvember 2026 til 2. desember 2026
09:00 til 16:00
Hvar
Saga
Nánar

Samsýning framhaldsskólanna er árleg sýning á verkum nemenda víðs vegar að af landinu. 

Samsýning framhaldsskólanna er árleg sýning á verkum nemenda víðs vegar að af landinu. 

Framhaldsskólar vinna öflugt og mikilvægt menntastarf. Í lok annar kynna nemendur gjarnan afrakstur náms síns á sýningum innan sinna skóla, en sá vettvangur nær oft takmörkuðum hópi gesta. Eitt af markmiðum Samsýningar framhaldsskólanna er að auka sýnileika þessara verkefna og vekja athygli almennings á því fjölbreytta starfi sem fram fer í framhaldsskólum landsins.

Sýningin fer fram í Sögu, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, þar sem almenningi gefst kostur á að skoða fjölbreytt og skapandi verkefni nemenda.

Með þátttöku í sýningunni fá nemendur tækifæri til að kynna afrakstur náms síns, deila hugmyndum og mynda tengsl við aðra nemendur og gesti. Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi list- og verkgreina í menntun og samfélagi, auk þess að hvetja til nýsköpunar, frumkvöðlastarfs, sjálfbærni og samþættingar STEAM-greina.

Samsýning framhaldsskólanna | Hönnun - Verkmennt - Nýsköpun

Allar nánari upplýsingar: Sigrún Baldursdóttir, verkefnisstjóri Samsýningarinnar - sbdottir@hi.is

Share