NKG+ er spennandi ný keppni sem ætluð er nemendum í 8.–10. bekk og byggir á vel heppnuðum grunni NKG hugmyndasamkeppninnar.
NKG+ er spennandi ný keppni sem ætluð er nemendum í 8.–10. bekk og byggir á vel heppnuðum grunni NKG hugmyndasamkeppninnar. Markmiðið er að nýsköpunin fái enn stærra rými með því að bæta við frumgerðarvinnu, þar sem nemendur fá tækifæri til að láta hugmyndir sínar lifna við í raunheimum.
Verkefnið er einstakt tækifæri fyrir nemendur og skóla til að kafa dýpra í skapandi ferli, tækni og lausnamiðað nám. Í NKG+ eiga nemendur að vinna að hugmynd sinni(hvort sem um er að ræða frumgerð, forrit, heimasíðu eða annað) yfir eina önn eða jafnvel heilt skólaár. Sú vinna getur átt sér stað í skólanum, þvert á fög, í FabLab, heima við, í fyrirtækjum eða annarsstaðar.
Markmiðið er að þegar kennarar/nemendur senda inn umsókn, fylgi henni ljósmyndir og/eða myndband af hugmyndinni. Einnig eiga nemendur að vera búin að vinna meira í frumkvöðlahluta hugmyndarinnar og gera kynningu á henni.
Frestur til að skila inn hugmyndum rennur út miðvikudaginn 14. apríl 2027
Allar nánari upplýsingar: Sigrún Baldursdóttir, verkefnisstjóri Samsýningarinnar - sbdottir@hi.is