Hvenær
13. október 2026
15:00 til 17:00
Hvar
Saga
Zoom
Nánar

Bekkjarstjórnun á unglingastigi

Viltu læra meira um hvernig á að stjórna bekknum þínum á unglingastigi? 

Á þessu tveggja tíma hagnýta námskeiði fá kennarar á unglingastigi einföld og áhrifarík verkfæri til að styrkja bekkjarstjórnun, auka ró og bæta samskipti. Lögð er áhersla á skýran ramma, jákvæða hvatningu og leiðir sem auðvelt er að innleiða strax í kennslu.

Námskeiðinu fylgir eftirfylgd (seinni hluti námskeiðsins) þar sem þátttakendur fá tækifæri til að deila reynslu, fá stuðning og dýpka skilning sinn – þannig verður námið raunhæft og nýtist í daglegu starfi.

Kennarar fá með sér verkfæri, aukið öryggi og nýja sýn á hvernig byggja má upp jákvæðan og styðjandi bekkjaranda.

Kennarar Þórhildur Helga Þorleifsdóttir kennsluráðgjafi hjá skólaskrifstofu Kópavogs og Hlín Magnúsdóttir Njarðvík deildarstjóri stoðþjónustu Helgafellsskóla. Báðar hafa þær áralanga reynslu af skólastarfi, sem kennarar og skólastjórnendur. 

Boðið er upp á að vera á stað eða á Zoom. 

Skráningarfrestur er til 9 október hér og kostar 5000 kr. 

 

 

Um Menntahleðsluna

Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru misjöfn að lengd, eitt skipti eða fleiri. 

Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar í skóla- og frístundastarfi. Það er okkur mikilvægt að hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar líka í fjarfundarformi, þegar það er hægt. 


Allar nánari upplýsingar: Unnur Björk Arnfjörð verkefnisstjóri á netfangið unnurbjork@hi.is

Share