Sköpun og stærðfræði eiga meiri samleið en fólk fær oft að kynnast. Efla má sköpun með lausnaleit, mynstrum, samræðum, leik, verklegri vinnu og skapandi tækni.
Námskeiðið er ætlað kennurum og skólum sem vilja efla stærðfræðimenntun en þeir kennarar sem sækja námskeiðið geta þróað eigin stærðfræðikennslu og verið leiðandi í sínum skóla. Námskeiðið byggir á öflugu námssamfélagi sem kennarar geta útvíkkað á eigin vinnustað og stuðlað að jákvæðri starfsþróun.
Markmið námskeiðsins er að kennarar öðlist innsýn í hlutverk sköpunar í stærðfræði og geti nýtt fjölbreyttar leiðir til þess að efla skapandi nám með nemendum sínum. Kennarar læra leiðir til þess að nálgast fjölbreyttan nemendahóp, stuðla að fjölbreyttu námsmati og kennsluháttum sem styrkja nemendur í grunnfærni sem og dýpra námi.
Námskeiðið hentar kennurum og sérkennurum á unglingastigi. Kennt verður í gegnum fjarfundarbúnað og milli tíma vinna kennarar í sínum skóla að starfsþróun á vettvangi.
Tímasetning: 14:15 - 15:45
Kennsludagar eru eftirfarandi:
21. október
25. nóvember
27. janúar
3. mars
7. apríl
19. maí
Skráning er hér
Kennari: Ósk Dagsdóttir, lektor við HÍ, grunnskólakennari að mennt og sérfræðingur í skapandi stærðfræði