Hvenær
20. október 2026
14:15 til 15:45
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar
Skapandi stærðfræði fyrir mið- og yngstastig
 
 
 
 
 
 
 
Lýsing

Sköpun og stærðfræði eiga meiri samleið en fólk fær oft að kynnast. Efla má sköpun með lausnaleit, mynstrum, samræðum, leik, verklegri vinnu og skapandi tækni.

Námskeiðið er ætlað kennurum og skólum sem vilja efla stærðfræðimenntun en þeir kennarar sem sækja námskeiðið geta þróað eigin stærðfræðikennslu og verið leiðandi í sínum skóla. Námskeiðið byggir á öflugu námssamfélagi sem kennarar geta útvíkkað á eigin vinnustað og stuðlað að jákvæðri starfsþróun.

Markmið námskeiðsins er að kennarar öðlist innsýn í hlutverk sköpunar í stærðfræði og geti nýtt fjölbreyttar leiðir til þess að efla skapandi nám með nemendum sínum. Kennarar læra leiðir til þess að nálgast fjölbreyttan nemendahóp, stuðla að fjölbreyttu námsmati og kennsluháttum sem styrkja nemendur í grunnfærni sem og dýpra námi.

Námskeiðið hentar kennurum og sérkennurum á yngsta og miðstigi grunnskólans allsstaðar að af landinu. Kennt verður í gegnum fjarfundarbúnað og milli tíma vinna kennarar í sínum skóla að starfsþróun á vettvangi.

Kennari: Ósk Dagsdóttir, lektor við HÍ, grunnskólakennari að mennt og sérfræðingur í skapandi stærðfræði

Tímasetning: 14:15 - 15:45

Kennsludagar eru eftirfarandi:

20. október

24. nóvember

26. janúar

2. mars

6. apríl

18. maí

Skráning er hér

Kennari: Ósk Dagsdóttir, lektor við HÍ, grunnskólakennari að mennt og sérfræðingur í skapandi stærðfræði

Share