Hvenær
15. september 2026
14:15 til 15:45
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar
Markmið námskeiðsins er að styðja við kennara og efla hæfni þeirra í ritunarkennslu og leiðsagnarnámi með Ritunarrammanum
 
 
 
 
 
 
 
Lýsing

Markmið námskeiðsins er að styðja við kennara og efla hæfni þeirra í ritunarkennslu og leiðsagnarnámi með Ritunarrammanum. Námskeiðið er hagnýtt og sniðið að þörfum starfandi kennara og tekur umfjöllunarefnið mið af daglegum viðfangsefnum skólans. Rætt verður um vinnubrögð ritunar og áhrifaríka ritunarkennslu. Einnig hvernig kennarar geta notað Ritunarrammann við mat og endurgjöf til nemenda og eflt áhuga þeirra og ábyrgð á náminu í gegn um faglega kennsluhætti. Þátttakendur læra að útbúa ritunarverkefni/verkefnislýsingar og hvernig fyrirmyndartextar nýtast í ritunarkennslu. Síðast en ekki síst fá þátttakendur leiðsögn og verkfæri sem hjálpa þeim að skipuleggja ritunarkennslu í sínum skóla þannig að hún verði heildstæð, markviss og með skýrum stíganda frá byrjun til enda grunnskólagöngu.

Námskeiðið samanstendur af sex lotum, eða þróunarhringjum. Á milli lota vinna þátttakendur verkefni þar sem þeir prófa í eigin kennslu það sem farið hefur verið í.

Loturnar eru kenndar þriðja þriðjudag hvers mánaðar frá klukkan 14:15-15:45.

  1. Lota     15. september Vinnubrögð ritunar og ritunarkennsla
  2. Lota     20. október   Leiðsagnarmat og endurgjöf með Ritunarrammanum
  3. Lota     17. nóvember  Sjálfsmat og félagamat
  4. Lota     19. janúar   Ritunarverkefni í námi og til mats
  5. Lota     16. febrúar    Fyrirmyndartextar
  6. Lota     16. mars  Framtíðarskipulag ritunarkennslu í mínum skóla

 

Við lok námskeiðs geta þátttakendur:

  • Skipulagt og ástundað áhrifaríka ritunarkennslu
  • Metið texta nemenda og nýtt niðurstöðurnar til að útbúa og/eða endurmeta kennsluáætlun
  • Veitt nemendum markvissa og uppbyggilega endurgjöf á ritun þeirra
  • Stutt nemendur í að taka ábyrgð á eigin ritunarnámi
  • Leitt breytingar á skipulagi ritunarkennslu í eigin skóla

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er fyrir kennara og stjórnendur í grunnskólum sem vilja dýpka þekkingu sína á ritunarkennslu og -mati. Reynslan hefur sýnt að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla þar sem það styður við samræmdar breytingar á skólastarfi, en það er þó ekki skilyrði.
 

Kennari: Katrín Ósk Þráinsdóttir

Læsisráðgjafi hjá MMS
Literacy Specialist | Evaluation and Testing
The Directorate of Education and School Services

Allar nánari upplýsingar hér 

 

 

Share