Á námskeiðinu Lestur á yngsta stigi grunnskóla verður fjallað um fjóra þætti læsis: lestur, hlustun, talað mál og ritun. Skoðað verður hvaða grunn að læsi leikskólinn veitir, hvernig mat á læsi fer fram í leikskólum og hvernig grunnskólinn getur nýtt sér það mat sem grunn að skipulagi á námi og kennslu í upphafi lestrarnámsins. Fjallað verður um nokkrar kennsluaðferðir og verður lögð áhersla á að skoða hvernig má best mæla árangur og framfarir nemenda í lestrarnáminu og hvernig kennarar geta nýtt sér matið til að gera skipuleggja kennsluna. Þá verður einnig fjallað um samstarf við heimilin, fræðslu um heimanám og hvaða leiðir er hægt að fara til að einstaklingsmiða heimanám.
Námskeiðið byggist á sex þróunarhringjum og í hverjum þróunarhring er unnið með afmarkaðan þátt læsis.
Við lok námskeiðsins hafa nemendur
- rýnt í hvernig niðurstöður skimana úr leikskóla eru nýttar í þeim skólum sem þeir starfa í og gert áætlun um hvernig kennarar geta nýtt gögnin til að skipuleggja kennsluna í upphafi 1. bekkjar.
- skoðað afmarkaða þætti læsis í tengslum við aðalnámskrá grunnskóla.
- fengið fræðslu um lestrarkennsluaðferðir þar sem sjónum er annars vegar beint að lesfimi og hins vegar lesskilningi.
- aflað sér þekkingar á tengslum skriftar, fingrasetningar og ritunar.
- öðlast skilning á mikilvægi þess að mæla árangur og meta framfarir nemenda á afmörkuðum tímabilum.
- lagt drög að einstaklingsmiðuðu heimanámi.
Dagsetningar á lotum:
14. sept. 2026
19. okt. 2026
23. nóv. 2026
11. jan. 2027
15. feb. 2027
5. apríl 2027
Allar lotur eru kl. 14:15-15:45
Allar nánari upplýsingar hér