Hvenær
21. september 2026
14:15 til 15:45
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar
Fjórir þættir læsis: Lestur, hlustun, talað mál og ritun.
 
 
 
 
 
 
 
Lýsing

Á námskeiðinu Lestrarkennsla á miðstigi verður fjallað um fjóra þætti læsis: lestur, ritun, talað mál og hlustun. Megin áhersla verður á lestrarkennsluaðferðir, mat á árangri og hvernig við nýtum niðurstöður mælinga til að taka ákvarðanir um áframhaldandi kennslu. Fjallað verður um grunn  að læsi, umskráningu, lesfimi, orðaforða, lesskilning, mál og máltjáningu, hlustunarskilning og ritun. Þá verður einnig rætt um mikilvægi skimunarprófa og hvernig má nýta niðurstöður þeirra til að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda með markvissum þjálfunaráætlunum og/eða námskeiðum. Að síðustu verður fjallað um samstarf við heimilin, heimanám og hvaða leiðir er hægt að fara til að einstaklingsmiða heimanám.

Námskeiðið byggist á fimm þróunarhringjum og í hverjum þróunarhring er unnið með afmarkaðan þátt læsis.

Við lok námskeiðs hafa þátttakendur:

  • öðlast færni í að leiða samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
  • öðlast skilning á mikilvægi þess að mæla árangur og meta framfarir nemenda á afmörkuðum tímabilum.
  • fengið þjálfun í að nýta niðurstöður mælinga til að gera áætlanir um næstu skref í kennslu.
  • skoðað afmarkaða þætti læsis í tengslum við aðalnámskrá grunnskóla.
  • fengið fræðslu um lestrarkennsluaðferðir þar sem sjónum er beint að lesfimi, orðaforða og lesskilningi.
  • öðlast þekkingu á tengslum skriftar, fingrasetningar og ritunar.
  • lagt drög að einstaklingsmiðuðu heimanámi.

Námskeiðið byggist á fimm þróunarhringjum og í hverjum þróunarhring er unnið með afmarkaðan þátt læsis.

Dagsetningar á lotum:

21. sept. 2026
2. nóv. 2026
7. des. 2026
18. jan. 2027
1. mars 2027

Allar lotur eru kl. 14:15-15:45

 Allar nánari upplýsingar hér 

 

 

Share