Hvenær
22. september 2026
14:15 til 15:45
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar

Íslenskuþorp í leikskólum um land allt

 
 
 
 
 
 
 
Lýsing

Námskeiðið er fyrir starfsfólk leikskóla sem hefur annað móðurmál en íslensku.

Á námskeiðinu verður fléttað saman fagtengdri íslenskukennslu og 8 fjölbreyttum þemum úr leikskólastarfi, eins og; málörvun, læsi, leik barna, jákvæðum samskiptum við börn og fjölmenningarlegu leikskólastarfi. Námskeiðið byggir á samtali þátttakenda, uppbyggingu tengslanets og samstarfi þátttakenda og mentora innan leikskólanna. Þátttakendur, mentorar þeirra og leikskólastjórar kynnast fjölmenningarlegum áherslum leikskólastarfs og fá tækifæri til að byggja upp þekkingu innan leikskólanna á ofangreindu til framtíðar.

Þátttakendur mæta tvisvar í mánuði í netkennslu á vinnutíma ásamt því að hitta mentora sína vikulega.

Athugið að við skráningu á námskeiðið skal skrá leikskólastjóra og tvo mentora. Fyrir nánari upplýsingar má skrifa tölvupóst til Guðlaugar Stellu verkefnisstjóra námskeiðsins; gudlaugs@hi.is – einnig má slá á þráðinn í síma 8988128.

Við lok námskeiðs hafa þátttakendur;

  • eflt hæfni sína í fagtengdri íslensku í leikskóla og aukið sjálfstraust í notkun íslenskunnar í leikskólanum.
  • kynnst 8 ólíkum þemum leikskólastarfs hjá íslenskukennara og fjölbreyttum hópi sérfræðinga í leikskólafræðum með áherslu á ný hugtök og hvernig þau koma fyrir í leikskólastarfi.
  • eignast tengslanet í leikskólum víða um land og kynnst fjölbreyttu leikskólastarfi þátttakenda sem og gestakennara.
  • byggt upp, ásamt mentorum sínum; fagþekkingu og fjölmenningarlegar áherslur í leikskólastarfi innan sinna leikskóla.

Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?

Námskeiðið er fyrir lengra komið starfsfólk í íslensku. Mikilvægt er að ákveðin skilyrði séu til staðar svo að námskeiðið verði sem lærdómsríkast fyrir þátttakendur og námssamfélagið í leikskólunum. Stuðningur og hvatning stjórnenda skiptir sköpum en gert er ráð fyrir að þátttakendur taki þátt í námskeiðinu á vinnutíma og hafi tvo mentora (aðalmentor og varamentor) sem verða honum samferða í gegnum námskeiðið. Samvinna mentora og þátttakenda er lykillinn að árangri í íslensku og aukinni þekkingu á faglegu starfi leikskólans.

Allir þátttökuleikskólar fá heimsóknir með fræðslu og handleiðslu til að tryggja eftirfylgd og aðlögun námskeiðsins að þörfum þátttakenda og leikskólanna.

  • Mentorar og leikskólastjórar mæta á fræðslu- og kynningarfund í upphafi námskeiðs 22. september kl 14:00 - 14:45. Fundarboð með upplýsingum kemur í tölvupósti.
  • Þátttakendur mæta á kynningarfund um fyrirkomulag námskeiðsins 23. september, kl 9:00 - 9:45. Fundarboð með upplýsingum kemur í tölvupósti.
  • Þátttakendur mæta tvisvar í mánuði í netkennslu á zoom, samtals 3 klukkustundir í mánuði.
  • Mentorar og þátttakendur taka frá tíma einu sinni í viku til að ræða þemu námskeiðsins við þátttakendur (mentorar skipta með sér verkum eftir aðstæðum).
  • Kennarar heimsækja leikskólana tvisvar yfir skólaárið með stöðumat og innleiðingu Íslenskuþorps.

Eins og í öðrum Menntafléttunámskeiðum eru þátttakendur í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu og einnig í samráði um val á mentor úr samstarfshópnum. Með því eru leikskólastjórar meðvitaðir um að styðja við þróun námssamfélags í leikskólanum.

Allar nánari upplýsingar 

Share