Hvenær
30. september 2026
14:15 til 15:45
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar
Áskoranir í skólastarfi
 
 
 
 
 
 
 

Samskipti

Lausnahringurinn - forvarnir í daglegum samskiptum

Lausnahringurinn er einfalt og hagnýtt verkfæri sem eflir félags- og tilfinningafærni barna. Börn fá sameiginlegt tungumál til að tjá líðan sína, setja og virða mörk, leita hjálpar og finna lausnir í samskiptum.

Verkfærið byggir meðal annars á Jákvæðum aga, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og fræðum um félags- og tilfinninganám. Kjarninn er þátttaka allra og ekki síst barnanna, fullorðnir eru jákvæðar fyrirmyndir, endurtekning og þjálfun í samskiptum, sem eru snemmtækar forvarnir, flötur til að skilja samkennd og samhug.

Lausnahringurinn varð upphaflega til í leikskólastarfi, þar sem nám fer fram í gegnum leik og börn æfa samskipti í raunverulegum aðstæðum. Innleiðing hans heldur áfram í leikskólum en nær nú einnig til frístundastarfs og yngsta stigs grunnskóla. Þannig má skapa samfellu í samskiptanámi barna milli skólastiga og ólíkra hluta dagsins.

Lausnahringurinn byggir á sjö leiðum: að stjórna sér, segja stopp, skiptast á, knúsa, vera með, hjálpa og fyrirgefa.

Tvær kennslulotur kenndar af Arnrúnu Maríu

Í fyrri lotunni kynnast þátttakendur hugmyndafræði og fræðilegum grunni Lausnahringsins, sjö lausnum hans og leiðum til að kenna börnum samskipti, mörk og lausnaleit með samtölum, leik og sýnikennslu.

Í seinni lotunni er áhersla á innleiðingu í daglegt starf. Þátttakendur skoða hvernig sameiginlegt tungumál barna og fullorðinna getur aukið öryggi, samræmt viðbrögð og styrkt samskipti innan alls skólasamfélagsins.

Við lok lotanna hafa þátttakendur fengið hagnýtar leiðir til að:

  • flétta forvarnarfræðslu inn í leik og daglegt skólastarf
  • virkja raddir og þátttöku barna
  • kenna og æfa sjö lausnir Lausnahringsins
  • efla sameiginlegt tungumál barna og fullorðinna
  • hefja markvissa innleiðingu á eigin vinnustað

Heðgun

Erfið og krefjandi hegðun barna og unglinga - Hvað er til ráða?

Skólinn er griðastaður barnanna og mikil ábyrgð hvílir á starfsfólki skóla að hlúa að sínum nemendum til að veita þeim góð skilyrði til náms, tryggja öryggi og vellíðan. Á meðan nemendur eru í skólanum er það á ábyrgð starfsfólk að vera tilbúið að grípa inn í aðstæður ef barn sýnir t.d. af sér erfiða og/eða krefjandi hegðun í hverju svo sem hún kann að birtast t.d. sem hegðunarvandi, ofbeldi, ógn eða áhættuhegðun. Í því skyni er mikilvægt að efla starfsfólk skóla í forvörnum og fræðslu um gagnreynd úrræði og bjargráð sem henta ólíkum börnum svo þau fái notið sín sem best í sínu skólaumhverfi.

Markmið með þessu námskeiði er að auka skilning, færni og öryggi starfsfólks skóla við að takast á við erfiða og krefjandi hegðun barna innan skóla. Námskeiðið byggir annars vegar á fræðslu um fjölbreyttar áskoranir barna sem geta leitt til erfiðrar hegðunar og hins vegar á kynningu og þjálfun í viðurkenndum, gagnlegum og gagnreyndum atferlismótandi aðferðum innan skóla. Má m.a. nefna hagnýt uppeldisráð til að hvetja til jákvæðrar hegðunar, kosti kortlagningar, aðlögun umhverfis, viðbragðsáætlanir, verkferlar og agaferli. Þá verður kennurum einnig kynnt gagnleg ráð í skólastofunni t.a.m. tengd skynörvun, skynvænu rými, sjónrænu skipulagi, griðarstað, eflingu stýrifærni, félagsfærni, eflingu tengsla, hagnýtingu styrkleika og áhugasviði barna og góðum ráðum í samskiptum við foreldra.

Helstu markmið

  • Auka skilning starfsfólks í skólum á áskorunum barna og erfiðri hegðun.
  • Efla færni og öryggi starfsfólks við að takast á við hegðunarvanda.
  • Kynna gagnreyndar aðferðir til að stuðla að jákvæðri hegðun í skólastarfi.

Við lok námskeiðs geta þátttakendur:

  • Leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
  • Beitt hagnýtum aðferðum til að efla jákvæða hegðun og umhverfisaðlögun.
  • Innleitt viðbragðs- og skipulagsáætlanir innan skólaumhverfis.
  • Eflt tengsla-, stýri- og samskiptafærni nemenda.

Myndband með fyrirlestri er sent út viku fyrir hverja lotu, þar sem þátttakendur geta undirbúið sig og rætt efnið í sínum skóla.

Ofbeldi

Ofbeldishegðun og hegðunarvandi er vaxandi innan skólakerfisins.

Rannsóknir sýna að nemendur beita ofbeldi vegna vanlíðanar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum, samskiptahæfni og fleiri þátta.

Ábyrgð starfsfólk skóla er mikil og mikilvægt að koma til móts við þarfi nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður.

Kennarar: Arnrún María Magnúsdóttir, Katrín Ruth Þorgeirsdóttir og Soffía Ámundadóttir

Allar nánari upplýsingar hér 

Share