Læsi í faggreinum á elsta stigi og framhaldsskóla með PACT PLUS
Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna í samvinnu við Menntahleðslu bjóða þér á viðburð sem ber yfirskriftina: Læsi í faggreinum á elsta stigi og framhaldsskóla með PACT PLUS
Dagskrá:
Fjallað verður um hvernig kennsluaðferðin PACT PLUS er notuð til að efla lesskilning við lestur í faggreinum í elstu stigum grunnskóla og í framhaldsskóla.
Fyrirlesarar:
Jade Wexler er prófessor í sérkennslufræðum og fyrsti handhafi heiðurstitilsins Dean's Impact Professor við College of Education, University of Maryland.
Rannsóknir hennar beinast að þróun, innleiðingu og mati á lestrarinngripum fyrir unglinga með lestrarörðugleika og fötlun. Jafnframt rannsakar hún og þróar nýstárleg líkön fyrir fagþróun kennara sem styðja við upptöku, innleiðingu, viðhald og útbreiðslu gagnreyndra starfshátta í læsiskennslu innan skóla. Sérstök áhersla er lögð á þróun gagnreyndra kennsluaðferða og stuðningsúrræða sem stuðla að bættum námsárangri þessa nemendahóps.Dr. Wexler hefur stýrt og tekið þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum sem hlotið hafa samkeppnisstyrki á landsvísu í Bandaríkjunum. Hún hefur birt yfir sextíu ritrýndar fræðigreinar, auk bókarkafla og þriggja bóka sem fjalla um læsi unglinga, leiðsögn og ráðgjöf í læsiskennslu og uppbyggingu heildstæðra starfshátta varðandi læsi í skólum.Hún flytur reglulega erindi fyrir kennara, skólastjórnendur og fræðafólk á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum og hefur sérstakan áhuga á að brúa bilið milli rannsókna og skólastarfs. Sem fyrrverandi sérkennslu- og lestrarkennari á framhaldsskólastigi byggir hún rannsóknir sínar á hagnýtri reynslu af vettvangi og leggur áherslu á lausnir sem nýtast í daglegri kennslu.
Karen Omohundro er gestasérfræðingur við University of Maryland og doktorsnemi í sérkennslu við George Mason University.
Við University of Maryland hefur hún starfað sem verkefnastjóri í fjölmörgum rannsóknar- og þróunarverkefnum á sviði læsis og skólaþróunar. Hún er nú verkefnastjóri í Project ECHO, rannsóknarsamstarfi sem vinnur að þróun og innleiðingu sjálfbærra og heildstæðra leiða til að efla læsi unglinga.Núverandi starf hennar beinist að samstarfi við skóla og skólastjórnendur um þróun og eflingu fjölþrepa stuðningskerfa (MTSS) til innleiðingar gagnreyndra kennsluaðferða í læsi fyrir unglinga. Sérstök áhersla er lögð á starfsþróun kennara, leiðsögn og ráðgjöf, mat á gæðum og tryggð við innleiðingu, gagnadrifna ákvarðanatöku og leiðir til að viðhalda og festa árangursríka starfshætti í sessi. Karen hefur meira en áratuga reynslu sem sérkennari á framhaldsskólastigi og innan réttarkerfisins, þar sem hún hefur unnið með ungmennum í lokuðum úrræðum. Rannsóknir hennar og áhugasvið beinast að því hvernig unnt er að nýta rannsóknaniðurstöður til að þróa kennsluaðferðir, stuðningskerfi og skólastarf sem stuðlar að auknu læsi og bættum námsárangri unglinga.
Hvar: Í Sögu og í streymi
Fundarstjóri: Auður Soffíu Björgvinsdóttir
Fyrirlesturinn er ókeypis en mikilvægt er að skrá sig hér
Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 8. október.
Fyrirspurnir sendist á berglinda@hi.is
Um Menntahleðsluna
Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru misjöfn að lengd, eitt skipti eða fleiri.
Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar í skóla- og frístundastarfi. Það er okkur mikilvægt að hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar líka í fjarfundarformi, þegar það er hægt.
Allar nánari upplýsingar: Unnur Björk Arnfjörð verkefnisstjóri á netfangið unnurbjork@hi.is