Nýjar leiðir til kennslu í Íslendingasagna
Íslendingasögur eru kenndar og þær lesnar í bæði grunnskólum og framhaldsskólum. Mismunandi er hvaða sögur eru lesnar og í hvers konar útgáfum. Þá eru nemendur af mjög fjölbreyttum toga og því hentar ekki sami texti öllum né heldur sama leið til að ná inntaki sagnanna, njóta þeirra og læra um þær. Myndir geta nýst mjög vel til að sem flestir nemendur njóti Íslendingasagna og sumar hafa verið gefnar út, að hluta eða heild, með myndum og oft vinna nemendur myndir eða myndverk í tengslum við sögurnar.Í námskeiðinu verður fjallað um ákveðna aðferð (e. Visual Thinking Strategy) við að „lesa“ í myndir og sýnt hvernig hægt er að kenna þessa aðferð við lestur Íslendingasagna og nýta hana til að auka skilning nemenda og lestrargleði sem og að auka fjölbreytni í kennsluaðferðum. Í fyrri tímanum verður aðferðin kynnt og sýnt hvernig hægt er að beita henni, þar á meðal með dæmum úr bókinni Njála hin skamma eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttir. Í seinni tímanum fá þátttakendur verkefni að kljást við í hópum úr Njálu hinni skömmu og þeim gefst einnig tækifæri að nýta aðferðina á bækur sem þeir kenna sjálfir eða vilja kenna auk þess sem ræddar verða fleiri leiðir við að flétta aðgerðinni inn í kennslu.
Tenging við Aðalnámskrá grunnskóla: Námskeiðið fellur vel að því sem segir í sameiginlegum köflum Aðalnámskrár grunnskóla og framhaldskóla þar sem fjallað er um grunnþætti menntunar, þá sérstaklega grunnþættina læsi og sköpun. Þá fellur námskeiðið m.a. að þeirri hæfni sem fjallað er um í Aðalnámskrá grunnskóla ætlast er til að nemendur nái við lok 10. bekkjar hvað varðar lestur og túlkun bókmennta, bókmenntagreiningu og bókmenntaarfinn sem og hvað varðar umfjöllun Aðalnámskrár framhaldsskóla um þær kröfur sem gerðar eru til nemenda varðandi þekkingu á bókmenntum, leikni til að lesa ólíkar gerðir ritaðs máls og hæfni til að lesa og túlka krefjandi texta.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kennarar kynnist aðferðinni Visual Thinking Strategy og læri nýjar leiðir við að kenna Íslendingasögur.
Markhópur: Grunn- og framhaldsskólakennarar, einkum þeir sem kenna íslensku, en efni námskeiðsins er hægt að yfirfæra á flestar námsgreinar.
Kennarar: Helga Birgisdóttir lektor á MVS og Kristín Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur og teiknari.
Boðið er upp á að vera á stað eða á Zoom.
Skráningarfrestur er til 20. október hér og kostar 5000 kr.
Um Menntahleðsluna
Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru misjöfn að lengd, eitt skipti eða fleiri.
Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar í skóla- og frístundastarfi. Það er okkur mikilvægt að hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar líka í fjarfundarformi, þegar það er hægt.
Allar nánari upplýsingar: Unnur Björk Arnfjörð verkefnisstjóri á netfangið unnurbjork@hi.is