Í Menntahleðslunni verður fjallað um hvernig á að efla skólatengsl hjá nemendum með taugafjölbreytileika (skynsegin) með því að auka aðgengi að jafnri þátttöku í námi m.a. með notkun hjálpartækja.
Kynnt verður The Belonging Chain sem lýsir því hvernig námsumhverfi sem er ekki aðgengilegt eða í samræmi við algildahönnun náms geti leitt til þess að nemendur með námserfiðleika hafi ekki jafnt tækifæri og með tímanum verið kerfisbundið útilokaðir úr námi.
Í Menntahleðslunni verður jafnframt fjallað um að efla skólatengsl hjá nemendum með taugafjölbreytileika (skynsegin) með því að auka aðgengi að jafnri þátttöku í námi m.a. með notkun hjálpartækja.
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir er sérfræðingur í heilbrigðisfræðslu (CHES) og aðgengilegri hönnun náms. Hún er með MS-gráðu í Heilsueflingu og hegðun og BA-gráðu í menntavísindum frá University of Florida. Hún er stofnandi og framkvæmdarstjóri HARTS.
Í rannsóknum hennar er hún helst að skoða hvernig hægt sé að auka aðgengi að menntun fyrir nemendur með námserfiðleika og mikilvægi þess að vinna út frá styrkleikum nemendans.
Menntahleðslan verður á Zoom.
Skráningarfrestur er til 4. september hér og kostar 5000 kr.
Um Menntahleðsluna
Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru stutt endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru misjöfn að lengd, eitt skipti eða fleiri.
Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar í skóla- og frístundastarfi. Eftir fremsta megni er reynt hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar líka í fjarfundarformi, sé þess kostur.
Allar nánari upplýsingar: Unnur Björk Arnfjörð verkefnisstjóri á netfangið unnurbjork@hi.is