Háskóli unga fólksins er fyrir fróðleiksfúsa og fjöruga krakka á aldrinum 12 - 14 ára í 6. - 8. bekk grunnskóla.
Í Háskóla unga fólksins er boðið upp á námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. Námskeið í í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.
Megináhersla Háskóla unga fólksins (HUF) er að vekja áhuga ungs fólks á námi, vísindum og fræðum. Með HUF gefst börnum og unglingum kostur á því að fræðast um flestallt milli himins og jarðar og öðlast um leið innsýn í hið gróskumikla vísinda- og fræðastarf sem á sér stað innan Háskóla Íslands. Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur hvert sumar frá árinu 2004.
Opnað verður fyrir skráningar um miðjan maí mánuð. Nánar auglýst síðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Ása Einarsdóttir, skólastjóri Háskóla unga fólksins: kristei@hi.is