Hvenær
14. nóvember 2026
09:00 til 16:00
Hvar
Annað
Háskólabíó
Nánar

Samsýning framhaldsskólanna er árleg sýning á verkum nemenda víðs vegar að af landinu. 

Þema FIRST LEGO League 2026 er BIOGLOW. Í ár vinna liðin með verkefni sem tengjast líffræðilegri fjölbreytni, vistkerfum og því hvernig tækni, sköpun og samvinna geta hjálpað okkur að skilja og vernda náttúruna.

Í vélmennahluta keppninnar hanna og forrita liðin LEGO® vélmenni sem leysir verkefni á keppnisvellinum. Verkefnin tengjast meðal annars ferlum í náttúrunni, til dæmis dreifingu fræja, sveppanetum, rannsóknum í trjákrónum, vernd búsvæða og varðveislu tegunda.

Í nýsköpunarverkefninu velja liðin vandamál sem tengist líffræðilegri fjölbreytni, rannsaka það og hanna lausn sem getur haft jákvæð áhrif. Liðin þurfa að útskýra hugmyndina sína, sýna hvernig þau þróuðu hana áfram og segja frá því hvernig hún gæti nýst öðrum.

BIOGLOW™ snýst því um að læra af náttúrunni, nota STEM, samvinnu og skapandi hugsun, og hanna lausnir fyrir heilbrigðari og tengdari framtíð.

Keppnin 2026 – First Lego League Ísland

Allar nánari upplýsingar: Brynjólfur Stefánsson, verkefnisstjóri FIRST LEGO League á Íslandi- brs@hi.is

Share