Fab Lab SAGA er ný sköpunar- og tæknismiðja sem er að rísa í Sögu en unnið hefur verið að undirbúningi hennar frá árinu 2022. Fablab Saga verður fyrsta háskóla Fab Lab sinnar tegundar á Íslandi sem sameinar á einum stað aðstöðu, þekkingu og samstarf þvert á fræðasvið og öll skólastig.
Fab Lab SAGA er stafræn smiðja með aðgang að öflugum búnaði til stafrænnar framleiðslu og frumgerðasmíði. Smiðjan styður við kjarnastarf háskólans, nám, kennslu og rannsóknir, og opnar um leið ný tækifæri til nýsköpunar, tilraunastarfs og þverfaglegs samstarfs.
Fab Lab SAGA mun þjóna fjölbreyttum hópi notenda, nemendum HÍ, kennurum, rannsakendum og samstarfsaðilum. Þar mætast verkfræðileg nálgun, tæknileg færni og skapandi hugsun sem nýtist í skóla- og frístundastarfi. Smiðjan byggir þannig brú milli háskólasamfélags og vettvangs menntunar.
Fab Lab SAGA er þróuð í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ, Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ og Mixtúru, sköpunar- og tæknivers skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Smiðjan er jafnframt hluti af Fab Lab Íslandi og alþjóðlegu Fab Lab neti sem styður við samstarf, miðlun þekkingar og áframhaldandi þróun.
Stefnt er á opnun í byrjun skólaárs 2026 en uppsetning smiðjunnar hefur tafist vegna framkvæmda á Sögu. Unnið er nú að stefnumótun fyrir grunnstarfsemi og dagskrá Fablabsins haustið 2026 og mun þetta líta einhvernig svona út::
- Kennsla/aðkoma/stuðningu við grunnáfanga hjá VoN, MVS og hugsanlega öðrum sviðum HÍ.
- Smiðjur, endurmenntunar - og starfsþróunarnámskeið á vegum NýMenntar og SFS/Mixtúru.
- Búnaðarbanki Mixtúru
- Fyrir kennara HÍ
- Grunnnámskeið
- Kennsluráðgjöf og aðgengi að lánsbúnaði fyrir kennslu
- Aðgengi að rýminu til kennslu
- Annar stuðningur FabLab við kennara og áfanga/nemendur þeirra
- Stuðningur við nemendur HÍ
- Grunnnámskeið og framhaldsnámskeið
- Aðgengi að rýminu/tækjum eftir samkomulagi fyrir verkefni nemenda
- Fyrir stoðþjónustu HÍ
- Útprentun á varahlutum og ýmsum íhlutum
Í undirbúningshóp Fablab eru:
- Eyjólfur, fyrir hönd NýMenntar/Menntavísindasviðs.
- Hafliði fyrir hönd Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
- Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir fyrir hönd Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
- Alexía, fyrir hönd Sköpunarsmiðju Mixtúru.
- Magnús er nýkominn í hópinn. Hann mun vinna náið með Hafliða og Alexíu í FabLabinu og mun bera þungan af dagsdaglegri viðveru og umsjón
Þessi síða verður uppfærð, samhliða framkvæmdum og uppsetningu smiðjunnar