Hvenær
11. nóvember 2026
15:00 til 17:00
Hvar
Rafrænt
Zoom
Nánar

Hvað er hægt að gera á meðan barn bíður eftir greiningu eða sértækum úrræðum?

Hvað getum við gert á meðan barn bíður eftir greiningu eða sértækum úrræðum?
Í fyrri hluta fræðslunnar (11. nóvember) skoðum við hvernig við getum stutt barn á meðan beðið er eftir greiningu eða viðeigandi úrræðum. Við ræðum hvernig tengsl, öryggi og fyrirsjáanleiki geta skipt sköpum á erfiðum stundum og förum yfir hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegum samskiptum.Þú færð hugmyndir að því hvernig má fyrirbyggja erfiðleika, lesa betur í líðan og hegðun barns og mæta því af ró og öryggi. 
 

Markmiðið er að efla þig í að styðja barnið hér og nú, með það sem þú hefur til ráðstöfunar. Þú ferð með verkfæri inn í skólastofuna og prófar. 
 

Í seinni hluta fræðslunnar (18. nóvember) fá þátttakendur tækifæri til að spyrja og spegla það sem þau tóku með sér í fyrri hlutanum. 
 


Hvar: í fjarkennslu
Fyrir hverja? Allt starfsfólk skóla- og frístundastarfi
Kennari: Ásgerður Arna Sófusdóttir hjúkrunarfræðingur og teymisstýra í fjölskylduteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna.
Skráningargjald: 5000 kr

 

Skráningarfrestur er til 26. október hér og kostar 5000 kr. 

 

 

Um Menntahleðsluna

Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru misjöfn að lengd, eitt skipti eða fleiri. 

Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar í skóla- og frístundastarfi. Það er okkur mikilvægt að hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar líka í fjarfundarformi, þegar það er hægt. 


Allar nánari upplýsingar: Unnur Björk Arnfjörð verkefnisstjóri á netfangið unnurbjork@hi.is

Share