Námskeið í bekkjarstjórnun
Viltu efla bekkjarstjórnunina, létta álagið og skapa jákvæðara námsumhverfi?
Á þessari hagnýtu tveggja skipta Menntahleðslu kynnast þátttakendur einföldum og áhrifaríkum leiðum til að styrkja bekkjarstjórnun, auka ró og stuðla að góðum samskiptum í bekknum. Lögð er áhersla á skýran ramma, jákvæða hvatningu og verkfæri sem auðvelt er að innleiða strax í daglegu starfi.
Þátttakendur prófa aðferðir með nemendahópum sínum, sem kynntar verða á milli hleðslnanna og fá markvissa handleiðslu við næsta skipti — þannig verður námið bæði raunhæft og gagnlegt. Námskeiðið hentar öllum sem starfa með börnum í grunnskólum og vilja byggja upp öruggt og styðjandi námsumhverfi.
Markhópur:
Kennarar og annað fagfólk í grunnskólum.
Markmið:
Að efla sjálfstraust, færni og þekkingu á bekkjarstjórnun sem eykur öryggi, vellíðan og námsárangur.
Innihald:
Farið er yfir traust, skýrar reglur og væntingar, jákvæða hvatningu, skipulag umhverfis og uppbyggileg viðbrögð við hegðun.
Kennslan byggir á umræðum, æfingum og verkefnum þar sem þátttakendur læra saman og þróa árangursríka starfshætti.
Áhersla:
Að skapa jákvæðan skólabrag þar sem öryggi, vellíðan og virðing einkenna samskipti.
Skráningarfrestur til og með 14. apríl kl. 16:00
Skráningargjald 5000 kr.