HVENÆR
13. febrúar 2025
15:00 til 16:00
HVAR
Rafrænt
Teams
NÁNAR

Sameiginleg fræðslustund Nýmenntar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Mixtúru hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. 

 

 

 

Markhópur: Allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi

Kynning á námsefni um stafræna borgaravitund frá Common Sense í íslenskri þýðingu sem opnar á vitundin.is í byrjun árs 2025. Kynnt verður hvernig námsefnið er byggt upp með kveikju, skyggnukynningum sem leiða okkur í gegnum kennslustundina og verkefnablöðum sem fylgja. Markmiðið er að þátttakendur upplifi sig tilbúna til að prófa kennslustund úr efninu og myndi sér skoðun á því hvernig það hentar best.

Dagsetning: 13. febrúar 2025
Klukkan: 15:00-16:00.
Hvar: Á Teams. Tengill verður sendur á skráða þátttakendur.* 

*Fræðslustundin verður tekin upp og gerð aðgengileg eftir á, með fyrirvara um birtingarleyfi fræðsluaðila.
Þau sem sitja erindið verða klippt út.

Skráning á fræðslustund

Nánari upplýsingar veitir: 

Unnur Björk verkefnisstjóri starfsþróunar á Menntavísindasviði, netfang unnurbjork@hi.is