15:30 til 17:00
Þessi menntahleðsla er fyrir kennara sem búa að efni sem þau vilja koma fyrir á vefnum til að geta deilt með öðrum eða þróað í samstarfi við aðra kennara.
Þátttakendur kynnast þremur tólum - Wordpress, Google Sites og Kennarakvikunni - og fá kennslu á því hvernig setja má efni inn á þau.
Meirihluti þessarar menntahleðslu er á formi vinnusmiðju þar sem þátttakendur setja inn eigið efni og fá aðstoð við það.
Við lok vinnusmiðjunnar eiga þátttakendur að:
- Þekkja til kosta og galla helstu verkvanga til deilingar efnis.
- Hafa sett upp eigin Wordpress eða Google Site vef, eða notanda á Kennarakvikunni.
- Hafa sett efni inn á minnst einn verkvang og vera fær um að halda því áfram.
- Vita hvernig stilla megi útlit á völdum verkvangi og halda honum við.
Þátttakendur koma með eigin tölvu og kennsluefni sem þau vilja koma á vefinn.
Kennari: Martin Jónas Björn Swift verkefnastjóri á Nýmennt
Skráningarfrestur til 20. október 2024.
Hvenær: 23. október 2024
Klukkan. 15:30-17:00
Hvar: Klettur - Menntavísindasviði og á Zoom
Fyrir hverja: Öll áhugasöm um að koma efni sínu á framfæri
Skráningargjald: 5000 kr.
Um Menntahleðsluna
Menntahleðsla Menntavísindasviðs eru stutt endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi.
Námskeiðin eru misjöfn að lengd, allt frá einni klukkustund yfir í lengri hleðslur sem skiptast jafnvel í tvö til þrjú skipti.
Leitast er eftir að hafa efni Menntahleðslunnar fjölbreytt svo þau henti fjölbreyttum hóp sem starfar við skólaþjónustu á Íslandi
Eftir fremsta megni er reynt hafa námskeiðin aðgengileg fyrir öll, óháð búsetu og því er lagt upp með að hleðslurnar séu kenndar rafrænt sé þess kostur.
Nánari upplýsingar:
Unnur Björk Arnfjörð
verkefnisstjóri starfsþróunar á Menntavísindasviði
unnurbjork@hi.is